15. apríl opnar formlega fyrir skráningar fyrir hross í Krýsuvík sumarið og haustið 2012. Hagabeitin sjálf opnar síðan 15. júní n.k.
Umsóknir berist á netfang Krýsuvíkurnefndar
Þar þarf að koma fram: Eigandi/greiðandi, heiti hrossa, litur og örmerkinga númer. Einnig er í lagi að hross séu frostmerkt.
Einnig má hringja í Halldóru Þorvarðardóttur í síma 895 2370 eða 555 1700
Hagabeitargjald
Hagabeitargjaldið er 2.000 kr. fyrir hross á mánuði, greiða þarf fyrir hrossin við skráningu, fyrir fyrra tímabilið eða í þrjá mánuði, ef hross á ekki að vera allt tímabilið er greitt fyrir þann tíma sem hrossið á að vera.
Stefnt er að því að þau hross sem verða í Krýsuvík í september verða ormalyfssprautuð og bætist sá kostnaður við hagabeitargjaldið. Síðast þegar var sprautað var hann 2.250 kr.
Aðeins skuldlausir félagsmenn í Sörla geta sent hross sín hagann í Krýsuvík.
Tímabilið
Hagabeitartímabilið er frá 15.júní til 15.desember.
Allt undir þeim anmarka að hagi og tíðarfar leyfi.
Hagabeitarskilmálar
Eftirfarandi skilmála þarf að samþykkja.
Hestamannafélagið Sörli áskilur sér allan rétt til að breyta tímabili hagabeitarinnar vegna ófyrirsjáanlegra orsaka svo sem veðurfars eða beitarþols svæðisins.
Hestamannafélagið Sörli ber ekki ábyrgð að neinu leiti á hrossum sem eru í hagabeit í Krýsuvík.
Öll hross sem eru í hagabeit í Krýsuvík verða að vera örmerkt. Einnig þarf að klippa í vinstra megin í bakið bókstafinn S og líma ákveðinn lit af límbandi vinstra megin í faxið, eigendur hrossa fá frekari upplýsingar um liti þegar hrossin eru skráð.
Af gefnu tilefni. Hagabeitendur greiða fyrir þann tíma sem beðið er um fyrir hrossin þó svo þau fari fyrr úr haga.
f.h. Krýsuvíkurnefndar
Sigríður Kr. Hafþórsdóttir
